Smá fróðleikur.
Að bóna er án efa það mikilvægasta sem þið gerið til að verja og viðhalda litadýpt og gljáa lakksins. Lakk án varnar er dæmt til þess að eyðileggjast. Það eru tvær tegundir bónefna sem hægt er að fjárfesta í: Carnauba vax (waxes) og lakk bón (sealants). Vax er hefðbundin, náttúruleg vörn fyrir bílinn sem verið hefur við lýð í tímans rás; lakk bón eru hinsvegar nýleg af nálinni og eru efnasamsetningar sem sett hafa verið saman til að þjóna sama tilgangi og vax, eða öllu heldur "'líkja eftir ".
Hver er munurinn ?
Carnauba vax framkallar mikla litadýpt og blautt útlit sem að öllu jöfnu næst ekki með venjulegu lakkbóni (sealants). Hinsvegar, hefur vaxið minni líftíma (átta til tólf vikur) og er yfirleitt erfiðara að bera á og þurrka af heldur en lakkbón (sealants). Lakk bón eru framleidd til að ná upp svipaðri litadýpt og Carnauba vax framkallar en afar fá lakk bón ná þeim útlitslegum gæðum sem Carnauba vax bjóða upp á. Á hinn bóginn þá er ending lakk bónanna allt frá 18 til 24 vikur og munu að öllu jöfnu ekki fara af við þvott. Ef þið sækist eftir blautu útliti, mesta gljáanum og litadýptinni, kjósið þá að nota ekta Carnauba vax.
Glitrandi Kynnir Dodo Juice
Hver er munurinn á þjónustu okkar og annarra bifreiðaþvottastöðva?
- Notum þvottahanska úr örtrefjaefnum eða mjúkri ull.
- Tvær fötur eru notaðar til að aðskilja sápuvatn og skolvatn. (Two Bucket Method)
- Sérstaklega þykkar og mjúkar örtrefjatuskur eru notaðar við þurrkun bifreiðarinnar.
- Hágæðabón frá Dodo Juice er borið á bifreiðina til að ná hámarks litadýpt.
DodoJuice Carnauba wax eru til í þrem megin gerðum, soft wax, hard wax og loks toppurinn á ísjakanum Supernatural. Dodo Juice leit dagsins ljós í byrjun ársins 2007. Þetta eru bónvörur með háu carnauba innihaldi sem framkallar mikla litadýpt, blautt útlit og perlar vel. Ending hverrar krukku er mikil eða allt frá 15-25 umferðir. DodoJuice bónvörurnar kosta einnig minna en samsvarandi vörur frá öðrum framleiðendum. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Dodo Juice